Flokkur: fréttir

25.11.2008 20:54

Fréttablaðið í dag



Trúir á réttlátt samfélag
Bergsteinn Jónsson stundar þann andlega lífsstíl sem Ananda Marga-hreyfingin boðar og segir hugmyndafræðina hafa fært sér orku, kærleik og hugrekki til að takast á við áskoranir daglegs lífs.
"Hugmyndafræðin heillaði mig þar sem hún er heilsteypt og gengur ekki aðeins út á hugleiðslu og líkamsæfingar heldur líka siðfræði, þar sem rétt breytni er í hávegum höfð.

"Hugmyndafræðin heillaði mig þar sem hún er heilsteypt og gengur ekki aðeins út á hugleiðslu og líkamsæfingar heldur líka siðfræði, þar sem rétt breytni er í hávegum höfð. Svo nær hún yfir hugmyndir um réttlátt samfélag," segir Bergsteinn Jónsson, verkefnastjóri hjá Unicef, sem hefur stundað andlegan lífsstíl í Ananda Marga-hreyfingunni síðustu fjórtán ár.

Ananda Marga kemur frá Indlandi og gengur meðal annars út á ástundun jóga og hugleiðslu. Bergsteinn kynntist fræðunum nítján ára og hefur síðan þá iðkað hugleiðslu kvölds og morgna og jóga fimm til sex sinnum í viku ásamt því að kenna það í Kaffi Hljómalind þrisvar í viku.

"Þegar ég komst í snertingu við þetta var ég, eins og fleiri unglingar, haldinn ákveðnu rótleysi. Á þessum aldri fara spurningar um alheiminn að leita á mann og réttlætiskenndin verður sterkari. Maður getur verið rosalega þröngsýnn, upptekinn af því hverju má klæðast svo dæmi sé nefnt, og að sama skapi mjög opinn. Þráin eftir óendanleikanum vaknar. Menn hrærast í heiminum eftir einhverjum krafti, annaðhvort í áttina til hans eða frá. Ég leitaði í hann þar sem ég vildi tengjast honum og hefði í raun ekki getað endað annars staðar en þar sem ég er í dag."

Bergsteinn varði fyrst meiri tíma í hugleiðslu, eða þar til hann stofnaði fjölskyldu. "Þá fór ég auðvitað að sinna meira fjölskyldunni, sem er líka í takt við þá speki að hugleiðsla og þjónusta verði að fara saman, því tileinki maður sér bara annaðhvort er hætt við að sjálfselska nái yfirhöndinni." Hann bætir við að eiginkonan sé á sömu bylgjulengd þótt hún stundi lífsstílinn ekki í eins miklum mæli.

"Ég neyti líka hugleiðslumiðaðrar fæðu. Borða mikið grænmeti. Laukur, hvítlaukur, sveppir og egg eru hins vegar á bannlista þar sem mælt er með að halda sig frá þeim fæðutegundum eigi að stunda djúpa hugleiðslu. Sú hugmynd er algengari á Indlandi heldur en á Vesturlöndum. Líkaminn bregst nefnilega við á ákveðinn máta þegar laukur er skorinn og hans neytt. Laukurinn og sveppirnir hita líkamann og hafa ertandi áhrif á miðtaugakerfið. Þetta verður reyndar til þess að oft er erfitt að fara út að borða," segir hann og hlær.

Spurður hvort ekki þurfi mikla sjálfstjórn og aga til að geta tileinkað sér þessa lífsspeki svarar Bergsteinn: "Maður gerir bara eins og fyrir mann er lagt, þar sem þetta er hluti af heildarpakkanum. Virki hann verður maður að gefa sig honum fullkomlega á vald. Annars er maður bara hálfur í þessu og útkoman er þá eftir því."

roald@frettabladid.is


23.10.2007 16:43

Systra Dc í kvöld klukkan 18:00

Já í kvöld klukkan 18:00 verður systra Dc, þ.e jóga, hugleiðsla að Þorragötu 1, 101 Reykjavík. Sælukot

kv.
Indra
    Flettingar í dag: 413
    Gestir í dag: 148
    Flettingar í gær: 409
    Gestir í gær: 127
    Samtals flettingar: 406556
    Samtals gestir: 86394
    Tölur uppfærðar: 6.2.2012 22:36:14

    Jógafélagið Ananda Marga

    Farsími:

    (00354)-6154617

    Tölvupóstfang:

    joga@anandamarga.is

    Heimilisfang:

    Efstasund 26, 104 Reykjavík

    Kennsla í hugleiðslu