Flokkur: Prout
28.04.2009 09:25
Athyglisverð grein á NEI eftir Ólaf Pál Jónsson
"Íslendingar hafa vaknað upp við afhjúpun þeirrar einföldu staðreyndar - sem raunar var augljós allan tímann - að tilgangur þjóðlífsins verður ekki fundinn í efnislegum gæðum og að líf í samfélagi er ekki fólgið í því að tína upp molana sem hrynja af annarra borðum, jafnvel þótt mylsnan sé ríkuleg á sína vísu. Það er þó ekki þessi staðreynd sem olli því félagslega umróti sem átt hefur sér stað í vetur, heldur sjálf afhjúpunin. Afhjúpunin var með þeim hætti að fólk gat ekki vikið sér undan því að taka afstöðu til spurningarinnar: Hvað vil ég með þetta samfélag? Þetta er tilvistarspurning og búsáhaldabyltingin var til marks um að fólk hafði frumkvæði og þor til að takast á við hana.
Það sem fólk vill með samfélagið er fyrst og fremst eitt: Að það verði ákjósanlegur vettvangur til að lifa góðu lífi, vettvangur þar sem fólk geti fundið sínu eigin persónulega lífi tilgang. Hver svo sem tilgangur ólíkra einstaklinga er, og hvernig svo sem ólíkir einstaklingar leita tilgangs í lífinu, þá blasir sú staðreynd við að samfélagið er sá vettvangur þar sem þessi leit fer fram. Og af þeirri ástæða hlýtur fólk að gera tilkall til þess að eiga hlutdeild í lífi samfélagsins. Ekki er nóg að fólk líti svo á að það hafi getu til að taka þátt í samfélaginu heldur verður fólk að hafa sanngjörn tækifæri til að vera virkt sem þátttakendur í samfélaginu - það verður að eiga þess kost að líta á líf sitt sem líf í samfélagi."
http://this.is/nei/?p=5199
26.06.2008 09:20
Nýjar höfuðstöðvar Priven í Caracas opnaðar
Um 100 manns mættu þar á meðal embættismenn, nágrannar, Margiiar og vinir.
Dagskrá spann um 5 tíma og var meðal annars hóphugleiðsla, stuttar ræður nefndarmeðlima, sýning á hinni 30 mínútna löngu mynd sem priven gerði fyrir Venezuelíska sjónvarpið "Another life is possible: Cooperatives in Barlovento, Venezuela." og fullt af ljúffengum grænmetismat.
Einnig flutti Dr. Carlos Molina Camacho, einn mest virti og reyndasti Prófessor í samvinnufyrirtækjum í Venezuela. Hann var yfir landsdeild samvinnufyrirtækja(Sunacoop), er prófessor í lögum samvinnufyrirtækja í stærsta og elsta háskóla landsins, Universidad Central de Venezuela og er höfundur margra bóka um samvinnufyrirtæki.
Hér er ræðan hans á ensku



