Færslur: 2008 Ágúst

18.08.2008 11:33

Opin hugleiðsla 17:30 alla mánudaga

Nú gefst öllum kostur á að koma í jógamiðstöðina að Efstasundi 26 og hugleiða á mánudögum klukkan 17:30. Þessi tími verður opin hugleiðslutími þar sem húsið er opið.

Á staðnum er salur til að hugleiða í með jógadýnum og pullum til að sitja á. Bókasafn er á staðnum með andlegum bókum þar sem einnig er hægt að setjast niður og fá sér tesopa, einnig er herbergi fyrir börnin til að leika sér í.

Ekki er kennd hugleiðsla á staðnum nema þess sé sérstaklega óskað fyrirfram og hægt er í þeim tilfellum að hafa samband í anandamargaiceland@hotmail.com.

09.08.2008 13:41

Ferð á Helgafell, Sjósund, kiirtan og hugleiðsla - Sunnudag

Núna á Sunnudaginn 10. ágúst er fyrirhuguð ferð á Helgafell sem er fjall nærri Reykjavík, auðvelt að ganga upp. Þvínæst verður farið í Nauthólsvíkina þar sem farið verður í sjósund og síðan í heitu pottana. Ferðinni verður svo lokið upp í jógafélagi þar sem verður kiirtan, hugleiðsla og matur.

Hist verður upp í jógafélagi, Efstasundi 26, 104 Reykjavík klukkan 11:45 og lagt verður af stað kl: 12:00. Reynum að sameinast í bíla svo sem flestir komist með.

05.08.2008 22:06

Nýjar bækur komnar ..

Kominn er nokkuð stór sending af nýjum bókum í jógamiðstöðina að Efstasundi. Ýmsar bækur komu eins og bókin hér til hliðar, Karma Jóga, Tantric kitchen-uppskriftabók, neohumanistic educational futures, yoga for health, carya carya 1-3, the thougts of Pr Sarkar og margt margt fleira.
Hægt verður að nálgast bækurnar næsta Sunnudag á Dharma Cakra klukkan 17:00.






05.08.2008 21:49

Heimasíða með jógafæði - Sentient food recipes

Nú er kominn á laggirnar heimasíða sem safnar saman uppskriftum er eru eftir jógafæðis kúnstarinnar reglum. Jógafæði er jurtafæði sem inniheldur ekki kjöt, fisk, egg, hvítlauk, lauk eða sveppi í meginatriðum (sjá útskýringu á þessu fæði hér).
Á heimasíðunni er hægt að leita að uppskriftum, setja inn sínar eigin uppskriftir og meta annarra manna uppskriftir. Nú þegar eru komnar inn 53 uppskriftir þar af 43 vegan.
Endilega skoðið síðuna;

http://www.sattvicfood.com/


03.08.2008 15:50

Myndir komnar inn frá Madhu Karuna

Jógavikan í Wendelsheim er nú búinn og flestir Íslendingarnir komnir heim. Við vorum 16 talsins og í heildina voru um 300 manns allstaðar af úr Evrópu.
Byrjunarerfiðleikar einkenndu vikuna í byrjun þar sem ekki átti að hleypa ákveðnu fólki inn, það var leyst farsællega og eftir það  fór allt á flug.  Tvisvar var um sólarhringskiirtan, annars var alltaf Akhanda kiirtan á morgnanna og síðdegis, námskeið á daginn og síðan dagskrá á kvöldin eins og RAWA kvöldin þar sem listamenn sem vilja láta gott af sér leiða koma fram. Einnig voru kenndar jógaæfingar á daginn, ein gifting fór fram og þrjár skírnir. Meðal áhugaverðra kynninga/námskeiða var um PCAP eða prevention of crualty towards animals and plants. Mjög áhugaverð samtök sem Baba setti á laggirnar og vinna að dýravernd, plöntuvernd og umhverfisvernd.
Myndirnar af retreatinu eru komnar inn undir myndaalbúm.
  • 1
Flettingar í dag: 153
Gestir í dag: 46
Flettingar í gær: 368
Gestir í gær: 41
Samtals flettingar: 455447
Samtals gestir: 95611
Tölur uppfærðar: 20.5.2012 21:03:51

Jógafélagið Ananda Marga

Farsími:

(00354)-6154617

Tölvupóstfang:

joga@anandamarga.is

Heimilisfang:

Efstasund 26, 104 Reykjavík

Kennsla í hugleiðslu