Færslur: 2008 Desember
25.12.2008 19:13
Gleðilega ljósahátíð

Gleðileg jól kæru jógar til sjávar og sveita.
Jólin eru hátíð ljóss og friðar. Þetta er tíminn þar sem myrkrið byrjar að minnka og ljósið eykst með hverjum deginum. Þetta skapar hugarró og frið í hjarta. Á þessum tíma er einnig haldið upp á afmæli jógans Jesú en hann færði okkar samfélagi áhersluna á kærleik. Hann sagði að í upphafi var orðið og það var hjá Guði, svo sagði einnig Shrii Shrii Anandamurtii að fyrst var Guð(alheimsvitund) og hann skapaði fyrst orðið sem var hljóðið Aum eða grunntónn sköpunarinnar sem heyrist enn, aðrir þættir fylgdu svo í kjölfarið. Hann lagði einnig ofuráherslu á kærleika gagnvart öllum hlutum, ekki bara mönnum heldur dýrum, plöntum og lífvana hlutum, en þó sérstaklega gagnvart Guði.
Vonandi hafa allir það sem yndislegast um hátíðirnar, hlúið vel að vinum og fjölskyldu og þeirra sem minna mega sín.
Babanam Kevalam
Skrifað af Ananda Marga
01.12.2008 23:46
Jóga á Hljómalind - Nýtt!
Yoga á Hljómalind fimmtudaga kl 17: 30 -18:30.Þetta er "Rajadiraja"(hvernig sem það er skrifað) yoga asanas, en öðrum stílum af yoga verður blandað inn í og hafðir með.
Kennarinn heitir Sigga. Hún hefur stundað yoga og hugleiðslu í um 4 ár, farið á tvær yogaþjálfanir og tekið yoga kennara réttindi.
Skrifað af Ananda Marga
- 1
Flettingar í dag: 154
Gestir í dag: 46
Flettingar í gær: 368
Gestir í gær: 41
Samtals flettingar: 455448
Samtals gestir: 95611
Tölur uppfærðar: 20.5.2012 21:26:03



