Færslur: 2009 Janúar

29.01.2009 22:49

Hvað þýðir Jóga ?


Sameining einstaklingsvitundar við alheimsvitundina. Sameina okkar smáa sjálf við hið stóra sjálf er jóga.
Til þess eru mörg tól, t.d jógaæfingar, hugleiðsla, þjónusta osfrv.

25.01.2009 15:32

Jóga. DC í dag kl 17:00








 
Í dag verður Dharma Chakra að vanda klukkan 17:00 að Efstasundi 26. Hefst á  klukkutíma kiirtan (möntru kyrjun) og síðan 30 mínútna hugleiðsla. Allir velkomnir en þeim er aldrei hafa komið í hugleiðslu er bent á fimmtudagana  frekar.

21.01.2009 10:48

Jóga. Hugleiðsla og tedrykkja annað kvöld (fimmtudag kl 20:00)

Næstkomandi fimmtudagskvöld klukkan 20:00 (á morgunn) verður hugleiðsla og tedrykkja/spjall eftirá.
Allir eru velkomnir og eru nýliðir hvattir til að mæta og koma með vini..

If one could visualise the original form of the Supreme Entity, all the apparent external differences would vanish into nothingness. In fact, the fundamental spirit of intuitional practice is to realize the Supreme Unity in the midst of diversity. - P.R Sarkar

20.01.2009 13:59

Jóga menntun - Neo Húmanismi

Indverski heimspekingurinn, aktivistinn og andlegi meistarinn P.R Sarkar setti fram hugmyndafræðina Neo-Húmanismi. Upp úr þeirri hugmyndafræði hafa verið stofnaðir fjölmargir skólar, bæði leikskólar, grunnskólar og háskólar, víða um veröld. Þar með er einn slíkur á Íslandi. Sá heitir Sælukot og er staðsettur að Þorragötu 1, 101 Reykjavík.
Neo-Húmanismi byggir á mörgum stoðum en einna helst er sú að hugmynd að bera umhyggju fyrir öllum hlutum í heiminum, þ.e mönnum, dýrum, plöntum og umhverfinu.

Verið er að vinna í ítarlegri heimasíðu um Neo-húmanisma og verður það tilkynnt hér þegar hún fer í loftið.

"Það verður að breiða út þekkingu til allra kima samfélagsins. Þú verður að skapa tækifæri fyrir fólk að dæma allt í ljósi sannleikans. Frelsaðu vitsmuni hvers og eins manns. Vitsmunir mannsins eru núna fastir í votu kviksyndi. Leyfum fólki að njóta hins sæta bragðs af vitsmunalegu frelsi." P.R Sarkar

"Gerðu eins mikið gott og þú getur, á allan hátt sem þú getur, á öllum stöðum sem þú getur, fyrir allt fólk sem þú getur, eins lengi og þú getur" P.R Sarkar

Margur hyggur, að fræðslan á barnsaldrinum miði eingöngu til þess, að veita börnunum þá þekkingu, er þau þarfnast síðar. Auðvitað er það mikils vert, en meira er þó í hitt varið, að vitsmunir barnanna þroskist á náminu, athygli glæðist, ímynduarafl auðgist, skilningur skerpist, andlegur sjóndeildarhringur víkki. (Magnús Helgason, 1919, bls 10)

14.01.2009 19:35

Jóga. Hugleiðsla á morgunn

Namaskar
Hugleiðslan verður að vanda á morgunn klukkan 20:00 að Efstasundi.
Allir velkomnir og endilega að taka vini með.
Te og spjall eftir á fyrir þá sem vilja..



Namaskar
Meditation will be tomorrow as usual at 20:00 at Efstasund.
Everybody is welcome and please bring friends along.
Tea and discussions afterwards for those who like.



Difficulities can never be greater than your capacity to solve them. -
P.R Sarkar

13.01.2009 13:39

Jóga. Hugleiðslukynning í Hinu Húsinu

Góðan dag
Í dag, þriðjudag, verður Einar Indra með kynningu á hugleiðslu í Hinu Húsinu, Pósthússtræti 3-5. Allir á aldrinum 16-25 ára eru velkomnir og það er ókeypis.

12.01.2009 11:38

Peta hvetur alla til að gerast grænmetisætur í 30 daga

Peta dýraverndunarsamtökin bandarísku hafa hrundið af stað átaki til að fá fólk til þess að vera grænmetisætur í 30 daga. Ástæða þess er til þess að aflétta þjáningu dýra og minnka slæm áhrif kjötáts á umhverfið. Fyrir hvern sem lofar þessu ætlar Peta að styrkja gróðursetningu ávaxtatrjá fyrir fátæka og vannærða.
sjá nánar: http://getactive.peta.org/campaign/30_day_pledge_to_veg_jan_09?c=weekly_enews

07.01.2009 15:07

Jóga. Fimmtudagshugleiðslan á morgunn /Thursday meditation starting again tomorrow at 20:00

Namaskar

Nú starfsemin legið niðri í jólafríinu en hófst á aftur síðastliðinn
Sunnudag með DC.

Hittumst á morgunn fimmtudag klukkan 20:00 í Rajadhiraja
jógamiðstöðinni Efstasundi 26.
Þeir sem hafa ekki mætt áður fá kynningu á hugleiðslu , þvínæst höfum
við sameiginlega hugleiðslu og eftir hitum við te og höfum umræður um
andleg málefni.
Allir velkomnir og endilega að koma með vini, því fleiri því betra.
Ókeypis

01.01.2009 17:01

Ananda Vanii





Ananda Vanii eru setningar sem Baba handskrifaði og gaf út á hverju ári á meðan Hann lifði. Þessar setningar eru kraftmikil og fela í sér mikinn innblástur. Ananda vaniið sem hér kemur á eftir á vel við hér á Íslandi á þessum ólgutímum:

"With the progress of science, the globe has become smaller
to the human eye. No place on the earth is now inaccessible, and this is
why it is the most opportune moment for building a universal human
society. Set yourselves to task without any further delay. Remember, a
human society based on ideology must be built with the help of all the
moralists and progressive people of the universe. This is the only way
for the survival of human civilization. The task will inevitably be
fraught with obstacles, and by combatting them you will have to be
victorious." (A'nanda Va'nii #51)


    Flettingar í dag: 416
    Gestir í dag: 148
    Flettingar í gær: 409
    Gestir í gær: 127
    Samtals flettingar: 406559
    Samtals gestir: 86394
    Tölur uppfærðar: 6.2.2012 23:11:16

    Jógafélagið Ananda Marga

    Farsími:

    (00354)-6154617

    Tölvupóstfang:

    joga@anandamarga.is

    Heimilisfang:

    Efstasund 26, 104 Reykjavík

    Kennsla í hugleiðslu