Færslur: 2009 Febrúar
27.02.2009 22:59
Jógahelgi (retreat) framundan 27-29. mars
Namaskar
Hugleiðsluhelgi/Retreat
Búið að fastsetja svokallað retreat eða hugleiðsluhelgi í
mars nánar tiltekið helgina 27-29 mars.
Farið verður upp á Snæfellsnes í Laugagerðisskóla þar sem er
gistiaðstaða, salur fyrir hugleiðslu/námskeið/jógaæfingar,
íþróttasalur, sundlaug og gott eldhús.
Dagskráin er ekki alveg kominn en hún mun allavega samanstanda af
námskeiðum/fyrirlestrum hugsað fyrir þá sem eru nýjir í jóganu,
sameiginlegri hugleiðslu og kirtan nokkrum sinnum á dag, grænmetismat
í hádegi og kvöldin, útiveru og annað í þeim dúr.
Þar sem það er takmarkaður fjöldi gistirýma þá biðjum við fólk um að
skrá sig sem fyrst.
Það þarf að vera búið að skrá sig fyrir 16 mars og borga
staðfestingagjaldið 2000 krónur.
Heildarverð helgarinnar eru litlar 5000krónur
Vonum að sem flestir sjái sér fært að koma
Hafið það sem best
www.anandamarga.is
Hægt er að skrá sig í joga@anandamarga.is
eða síma 6154617
19.02.2009 16:06
Jóga. Hóphugleiðsla í kvöld kl 20:00, Efstasundi 26

08.02.2009 12:37
Jóga. Dharma Chakra (hóphugleiðsla) í kvöld kl 17:00 að Efstasundi 26

Dharma Chakra er haldin einu sinni í viku á Sunnudögum. Mjög mikilvægt er fyrir alla sem leggja stund á hugleiðslu að styrkja sig í iðkuninni með því að taka þátt í Dharma Chakra þar sem hugleitt er saman, gerður kiirtan og andlegar ritningar lesnar og ræddar. Þetta endurspeglast vel í hinni ævafornu möntru sem er sungin á undan hugleiðslunni og táknar mikla samvinnu eins og sést hér að neðan:
Sam'gacchadvam' Sam'vadadhvam'
Sam'vomana'm'is Ja'natam
Deva'bha'gam Yatha' Purve
Sam'jana'na Upasate
Saman'ii Va A'kuti
Sama'na' Hrdaya' Nivaha
Sama'nam Astu Vomano
Yatha' Vaha Susaha'sti
Ferðumst saman, geislum út sömu hugsunum
Kynnumst huga okkar saman.
Skiptum auði okkar án mismununar, eins og vitringar til forna
þannig að allir geti notið alheimsins
Sameinum áform okkar, látum hjörtu okkar verða óaðskiljanleg,
hug okkar sem einn, svo að við getum lifað í sátt og orðið eitt með hinu æðsta
- 1



