Færslur: 2009 Mars
26.03.2009 19:03
Jóga. Hugleiðsla fyrir byrjendur í kvöld/meditation for beginners tonight at 20:00
Farið verður yfir grunn hugleiðslu ásamt möntrusöng og á eftir gefst rými fyrir umræður yfir tesopa.
Allir velkomnir
www.anandamarga.is
Meditation tonight in Efstasund 26 at 20:00. Basic meditation taught as well as mantra singing. Afterwards there is discussion and tea drinking.
22.03.2009 20:54
Hugleiðsluhelgin fullbókuð og vel það
Þá er búið að loka fyrir skráningu á hugleiðsluhelgina. Áhuginn fór fram úr björtustu vonum og er von á tæplega 70 einstaklingum á Snæfellsnesið um næstu helgi. Þegar eru fleiri í hóp þá skapar það ennþá kraftmeira andrúmsloft sem gerir hugleiðsluna auðveldari og því er hægt að búast við magnaðri helgi.
Búinn var til póstlisti til þess að senda tilkynningar, hann er á:http: http://groups.google.com/ svo leitið þið að hugleiðsluhelgi Snæfellsnesi2009 og skráið ykkur á hann. Þar getið þið síðan sett fram fyrirspurn t.d ef ykkur vantar far eða hafið spurningar.
Vantar þér far, eða getur veitt far? Endilega sendu email á joga@anandamarga.is og við skulum reyna að halda utan um hverjir eru með far og hverjir ekki. En reynið þó eftir fremsta megni að redda fari fyrst.
Rútuferðir: Það virðist engin áætlunarrúta fara uppá Snæfellnes þótt undarlegt sé, hinsvegar fer ein uppá Borganes, sjá HÉR
Þaðan væri hægt að ferja fólk í Laugagerðisskóla, en það er um 30mínútur.
Byrjendahugleiðsla: Hvetjum alla, ef þeir geta, að koma í kynninguna á fimmtudaginn á hugleiðslu. Þar verður farið í grunn hugleiðslu og kirtan. Síðan er te sötur og spjall.
Sjáumst um helgina (eða fimmtudag)
Hlökkum til
www.anandamarga.is



