Færslur: 2010 Október
22.10.2010 22:34
Jóga og hugleiðsluhelgi aðra helgina í nóvember
Búið er að skipuleggja næstu hugleiðsluhelgi en hún verður í Vindáshlíð helgina 12 -14 nóvember 2010.
Sjá PDF skjal HÉR og lýsinguna hér að neðan:
Retreat eru tími til þess að taka sér frí frá stressi daglegs lífs og leita inná við. Þau þjóna þeim tilgangi að hlaða batteríin, eyða tíma með góðu fólki og fræðast um jóga. Á þessu A.M retreati mun vera mikið um kiirtan (möntrusöng) og hugleiðslu þar sem hver og einn getur tekið þátt eins og hann vill. Fyrsta kvöldið verður kennsla fyrir byrjendur, einnig verður kennsla í jógaæfingum á hverjum degi og nokkrir fyrirlestrar um andleg málefni. Þessi helgi verður vafalaust mjög skemmtileg upplifun og vonandi sjá sem flestir sér fært um að koma.
Staðsetning: Vindáshlið í Kjós
Skráning og uppl.: sunnajohanns@hotmail.com
Verð: 7000 k. fyrir herbergi
Hálfvirði fyrir börn 12 ára og yngri
Ókeypis fyrir börn 6 ára og yngri.
Morgunnmatur, hádegismatur og kvöldmatur innfalið.
Dagskrá
Föstudagur
18:00-19:00 Komutími
19:00-20:00 Kvöldmatur
20:00 - 20:30 Kynning á dagskrárliðum
20:30 - 22:30 Kynningarfyrirlestur um jóga, hugleiðslu og kiirtan.
Laugardagur
05:00-05:30 Morgunhugleiðsla
06:00-07:00 Jógaæfingar
07:00-08:00 Hugleiðsla og kiirtan
8:00 - 8:15 Kynning á söng eftir hugleiðslu
08:30-09:30 Morgunmatur
10:00-11:00 Fyrirlestur - Neó húmanismi
11:30 - 12:30 Hugleiðsla og kiirtan
12:30 - 12:45 Kynning á söng eftir hugleiðslu
13:00-14:00 Hádegismatur
14:00-16:00 Útivera og frjáls tími
16:00 - 17:00 Jógaæfingar
17:00 -19:00 Langur kiirtan og hugleiðsla
19:00-20:00 Kvöldmatur
20:00-22:00 Kvöldvaka
22:00-23:00 Kvöld kiirtan og hugleiðsla
Sunnudagur
05:00-05:30 Morgunhugleiðsla
06:00-07:00 Jógaæfingar
07:00-08:30 Hugleiðsla og kiirtan
8:00 - 8:15 Kynning á mataræði&hugleiðslu
08:30-09:30 Morgunmatur
10:00-11:30 Fyrirlestur-10 leiðir til hamingju
11:30 - 13:00 Hugleiðsla og kiirtan
13:00-14:00 Hádegismatur
14:00 - ...... tiltekt og brottför (Vinsamlegast hjálpa til við tiltektina, sérstaklega í sínu eigin herbergi)
Gott að taka með:
Teppi til að hugleiða á, svefnpoka (eða sæng,kodda), dýnur til að sofa á eru í herbergjunum , en takið með lak, útiföt, þægileg föt í jógatíma, hljóðfæri ef þið viljið spila með í kiirtan.
Kennsla á hugleiðslu og yfirferð á fyrri hugleiðslulexíum:
Hægt er að læra hugleiðslu hjá Didi Ananda Kaostubha og Dada Vandanananda um helgina.
Ef spurningar vakna hikið ekki við að senda línu á sunnajohanns@hotmail.com eða tala við einhvern af reyndari jógaiðkendum á staðnum. Einnig hægt að kíkja á www.anandamarga.is
Babanam Kevalam - Ást er allt sem er
16.10.2010 20:38
Dharma Cakra verður ekki í Efstasundi næsta Sunnudag..
Kl 17:00 eins tíðkast
B.N.K
09.10.2010 15:39
Afmæli alþjóðlegu möntrunnar Babanam Kevalam
Af því tilefni býður vefsíðan og útgáfufyrirtækið INNERSONG 40 % afslátt af öllum kiirtan diskum.
Sjá www.innersong.com
Babanam Kevalam !
- 1



