Færslur: 2010 Október

22.10.2010 22:34

Jóga og hugleiðsluhelgi aðra helgina í nóvember

Namaskar allir

Búið er að skipuleggja næstu hugleiðsluhelgi en hún verður í Vindáshlíð helgina 12 -14 nóvember 2010.
Sjá PDF skjal HÉR og lýsinguna hér að neðan:

Retreat eru tími til þess að taka sér frí frá stressi daglegs lífs og leita inná við. Þau þjóna þeim tilgangi að hlaða batteríin, eyða tíma með góðu fólki og fræðast um jóga. Á þessu A.M  retreati mun vera mikið um kiirtan (möntrusöng) og hugleiðslu þar sem hver og einn getur tekið þátt eins og hann vill. Fyrsta kvöldið verður kennsla fyrir byrjendur, einnig verður kennsla í jógaæfingum á hverjum degi og nokkrir fyrirlestrar um andleg málefni. Þessi helgi verður vafalaust mjög skemmtileg upplifun og vonandi sjá sem flestir sér fært um að koma.

 


Staðsetning:  Vindáshlið í Kjós

Skráning og uppl.:  sunnajohanns@hotmail.com

Verð:  7000 k. fyrir herbergi

Hálfvirði fyrir börn 12 ára og yngri

Ókeypis fyrir börn 6 ára og yngri.

Morgunnmatur, hádegismatur og kvöldmatur innfalið.


Dagskrá


Föstudagur

18:00-19:00 Komutími

19:00-20:00 Kvöldmatur

20:00 - 20:30 Kynning á dagskrárliðum

20:30 - 22:30  Kynningarfyrirlestur um jóga, hugleiðslu og kiirtan.

Laugardagur

05:00-05:30 Morgunhugleiðsla

06:00-07:00 Jógaæfingar

07:00-08:00 Hugleiðsla og kiirtan

8:00 - 8:15 Kynning á söng eftir hugleiðslu

08:30-09:30 Morgunmatur

10:00-11:00 Fyrirlestur - Neó húmanismi

11:30 - 12:30 Hugleiðsla og kiirtan

12:30 - 12:45 Kynning á söng eftir hugleiðslu

13:00-14:00 Hádegismatur

 

14:00-16:00 Útivera og frjáls tími

16:00 - 17:00 Jógaæfingar

17:00 -19:00 Langur kiirtan og hugleiðsla

19:00-20:00 Kvöldmatur

20:00-22:00 Kvöldvaka

22:00-23:00 Kvöld kiirtan og hugleiðsla

Sunnudagur

05:00-05:30 Morgunhugleiðsla

06:00-07:00 Jógaæfingar

07:00-08:30 Hugleiðsla og kiirtan

8:00 - 8:15 Kynning á mataræði&hugleiðslu

08:30-09:30 Morgunmatur

10:00-11:30  Fyrirlestur-10 leiðir til hamingju

11:30 - 13:00 Hugleiðsla og kiirtan

13:00-14:00 Hádegismatur

14:00 - ...... tiltekt og brottför (Vinsamlegast hjálpa til við tiltektina, sérstaklega í sínu eigin herbergi)


Gott að taka með:

Teppi til að hugleiða á, svefnpoka (eða sæng,kodda), dýnur til að sofa á eru í herbergjunum , en takið með lak,  útiföt, þægileg föt í jógatíma, hljóðfæri ef þið viljið spila með í kiirtan.

Kennsla á hugleiðslu og yfirferð á fyrri hugleiðslulexíum:

Hægt er að læra hugleiðslu hjá Didi Ananda Kaostubha og Dada Vandanananda um helgina.

 

Ef spurningar vakna hikið ekki við að senda  línu á sunnajohanns@hotmail.com  eða tala við einhvern af reyndari jógaiðkendum á staðnum.  Einnig hægt að kíkja á www.anandamarga.is

Babanam Kevalam - Ást er allt sem er


16.10.2010 20:38

Dharma Cakra verður ekki í Efstasundi næsta Sunnudag..

... Heldur heima hjá Álfdísi að Sunnuhlíð v/Suðurlandsveg.. 270 Mosfellsbær

Kl 17:00 eins tíðkast

B.N.K

14.10.2010 16:24

Agnisara mudra

09.10.2010 15:39

Afmæli alþjóðlegu möntrunnar Babanam Kevalam

8. október var 40 ára afmæli möntrunnar Babanam Kevalam. Fyrir 40 árum var byrjað að nota þessa möntru. Það má lesa söguna á bak við það hér

Af því tilefni býður vefsíðan og útgáfufyrirtækið INNERSONG 40 % afslátt af öllum kiirtan diskum.

Sjá www.innersong.com

Babanam Kevalam !
  • 1
Flettingar í dag: 157
Gestir í dag: 46
Flettingar í gær: 368
Gestir í gær: 41
Samtals flettingar: 455451
Samtals gestir: 95611
Tölur uppfærðar: 20.5.2012 22:15:11

Jógafélagið Ananda Marga

Farsími:

(00354)-6154617

Tölvupóstfang:

joga@anandamarga.is

Heimilisfang:

Efstasund 26, 104 Reykjavík

Kennsla í hugleiðslu