Færslur: 2011 Janúar

27.01.2011 11:26

Kynnning og kennsla á hugleiðslu í kvöld

Kl 21:00 í kvöld mun jógamunkurinn Dada Subudyananda kynna og kenna hugleiðslu fyrir áhugasama í Efstasundi 26.
Allir velkomnir og aðgangur er ókeypis

Nánari upplýsingar í síma - 6154617

27.01.2011 11:24

Jóganámskeið á Akureyri næsta laugardag

Jógamunkurinn Dada Subudhyananda hefur mikla reynslu af að kenna hugleiðslu og jóga en hann hefur ferðast um heiminn undanfarinn 30 ár við kennslu og þátttöku í hjálparstarfi.
Laugardaginn 29. janúar 2011 gefst tækifæri til þess að læra hugleiðslu af þessum reynslubolta en þá verður haldið dagsnámskeið í Orkulundi, Viðjulundi1,  á Akureyri.

Verð aðeins 2000 kr. fyrir allan daginn en námskeiðið byrjar kl 10:00

Nánari upplýsingar: einarindra@hotmail.com

eða á www.anandamarga.is

Einnig mun Dada bjóða uppá einstaklingskennslu í hugleiðslu fyrir þá sem hafa einhverja reynslu af hugleiðslu og vilja dýpka það enn frekar.

24.01.2011 21:23

Kiirtan og hugleiðsla á morgunn, þriðjudag, kl 18:00

Allir velkomnir
Verður í Efstasundi 26

Súpa fyrir hungraða eftir á

23.01.2011 22:56

Hugleiðsla, kiirtan og súpa kl 18 á þriðjudag

Namaskar

Allir velkomnir í hugleiðslu og kiirtan kl 18:00 næstkomandi þriðjudag. Eftir það fáum við okkur smá súpu saman.

Hafið það sem best

19.01.2011 17:22

Retreat um næstu helgi

Hugleiðsluhópurinn Andvari skipuleggur hugleiðsluhelgi um næstu helgi.

Sjá nánar á http://www.facebook.com/#!/event.php?eid=165197023525378

11.01.2011 10:47

Frí jógaæfingatími á fimmtudag

Namaskar

Endilega kíktu við í jógatíma á fimmtudaginn kl 17:10-18 í Efstasundi 26.

Jógaæfingar, öndun, slökun og létt hugleiðsla.

Eitthvað fyrir alla !

kv.
Einar

06.01.2011 13:39

Jóganámskeið hjá Einari Indra janúar-febrúar 2011



"Góð leið til að byrja morguninn"

Hentar öllum, jafnt þeim sem hafa komið áður og byrjendum. Farið er  yfir grunn jógastöður úr hatha jógakerfinu í bland við A.M jógaæfingar. Tímarnir eru mestmegnir rólegir og slakandi. Farið er vel í stöðurnar, fundið fyrir áhrifum þeirra og leitað inná við. Mikið unnið með öndun og æfingar gerðar í tengslum við djúpa öndun.

Æfingarnar vinna vel gegn stressi og gefa mikla orku. Unnið er með líkamsstöðuna og flesta líkamshluta eins og háls, axlir, olnboga, úlnliði,  bak, mjaðmir, hné, ökla, tær o.s.frv.  Aðaláherslan er á rólegri æfingar en þó verða erfiðari og meira orkukrefjandi æfingar teknar inná milli.

Kennsla fer fram í litlum hópum, ekki fleiri en 10, til þess að skapa betra rými fyrir kennarann að leiðbeina hverjum og einum.

Eftir hvern tíma er slökun og létt hugleiðsla

"Mér finnst námskeiðið rétt! Það þýðir ég leiðréttist bæði líkamlega og andlega - varð eins og ég á að vera. Unaður :)" - Ónafngreindur iðkandi, úr könnun eftir námskeiðið

Kennari er Einar Indra.

Einar hefur kennt jóga og hugleiðslu undanfarin 10 ár og sótt ýmsar ráðstefnur í tengslum við það. Í ágúst 2010 lauk hann jógakennaranámi hjá alþjóðlega jógafélaginu Ananda Marga. Hann leggur áherslu á Ananda Marga jógaæfingar, sem vinna með einstaklinginn líkamlega, hugrænt og andlega, en fléttar einnig inní þær áherslum úr öðrum leiðum. Einar er einnig menntaður í félagsuppeldisfræðum og er framhaldsskóla- og grunnskólakennari. Hann kennir jóga sem valfag í menntaskóla allt árið ásamt því að kenna 5 - 8 ára krökkum jóga í barnaskóla.

Verð fyrir námskeiðið og tímar


Morgunnámskeið 1

Mánudaga kl 7:00 -7:50

Miðvikudaga kl 7:00 -7:50

Föstudaga kl 7:00 -7:50

Morgunnámskeið 2

Mánudaga kl 8:00 -8:50

Miðvikudaga kl 8:00 -8:50

Föstudaga kl 8:00 -8:50


Námskeiðið er 6 vikur, 17.janúar - 25.febrúar og kostar aðeins 7500 krónur. Skráning og upplýsingar  sendast í einarindra@hotmail.com, - http://einarindra.wordpress.com/. Vinsamlegast sendið á mig fullt nafn, síma og hvort námskeiðið hentar ykkur.

 "Ég hef þjáðst af bakmeiðslum eftir umferðaslys. Er auðmjúk og þakklát fyrir námskeiðið, sérstaklega æfingarnar sem við gerum og leiðbeiningarnar. Mæli með þessu við hvern og einn og vil meira :)"

 Ónafngreindur iðkandi, úr könnun eftir námskeiðið

ÁST OG FRIÐUR

05.01.2011 11:42

Jóga í Húsinu


Ókeypis jógatími verður í Kjallara "Húsins" (Höfðatúni 12)  næsta fimmtudag, 6. janúar, og vonandi næstu fimmtudaga.
Gott er að mæta með jógamottu eða eitthvað sem gerir sama gagn, teppi, blað og penna.

Ath. þetta er ekki AM jóga en örugglega áhugavert engu að síður..

01.01.2011 17:12

DC fellur niður

Namaskar
Vert að benda á að DC á morgunn verður ekki vegna þess að það var í dag.

  • 1
Flettingar í dag: 157
Gestir í dag: 46
Flettingar í gær: 368
Gestir í gær: 41
Samtals flettingar: 455451
Samtals gestir: 95611
Tölur uppfærðar: 20.5.2012 22:15:11

Jógafélagið Ananda Marga

Farsími:

(00354)-6154617

Tölvupóstfang:

joga@anandamarga.is

Heimilisfang:

Efstasund 26, 104 Reykjavík

Kennsla í hugleiðslu