Færslur: 2011 Október

06.10.2011 15:48

Hugleiðslan á Sunnudögum færð

D.C verður áfram á sunnudögum kl 16:00 en við hittumst núna á leikskólanum Sælukot sem er staðsettur á Þorragötu 1

Hægt er að fá nánari upplýsingar hjá Einari í síma 6610391

05.10.2011 11:39

Jóga og hugleiðsluhelgi Ananda Marga

Namaskar
Nú styttist í næstu hugleiðsluhelgi.. Fyrsta helgin í nóvember..
Jóga og hugleiðsluhelgarnar eru kjörið tækifæri til þess að taka sér frí frá stressi daglegs lífs og leita inná við. Þau þjóna þeim tilgangi að hlaða batteríin, eyða tíma með góðu fólki, styrkja eigin ástundun og fræðast um jóga.
Um þessa helgi mun að vanda vera talsvert um kirtan (möntrusöng) og hugleiðslu. Einnig er kennsla fyrir byrjendur í hugleiðslu, ...kennsla í jógaæfingum á hverjum degi og fyrirlestrar/námskeið um jóga og andleg málefni.

Helgin verður vafalaust mjög skemmtileg upplifun og vonandi sjá sem flestir sér fært um að koma.

Bendum fólki á að skrá sig sem fyrst þar sem síðast komust færri að en vildu..

Staðsetning: Vindáshlið í Kjós
Skráning og uppl.: sunnajohanns@hotmail.com
Verð: 7000 kr
Morgunnmatur, hádegismatur, kvöldmatur, gisting og kennsla innfalið.
Hálfvirði fyrir börn 12 ára og yngri
Ókeypis fyrir börn 6 ára og yngri.

Babanam Kevalam !

  • 1
Flettingar í dag: 85
Gestir í dag: 57
Flettingar í gær: 318
Gestir í gær: 126
Samtals flettingar: 413583
Samtals gestir: 88464
Tölur uppfærðar: 23.2.2012 04:49:35

Jógafélagið Ananda Marga

Farsími:

(00354)-6154617

Tölvupóstfang:

joga@anandamarga.is

Heimilisfang:

Efstasund 26, 104 Reykjavík

Kennsla í hugleiðslu